Ađalvalmynd

Klukkan

Profile

  • Nafn: Signy Bjorg Gudlaugsdottir
  • Netfang: signy@8.is
  • Stađur: Hafnarfjörđur
  • Atvinna: Digital media hönnuđur / Ljósmyndari / Nemi í Victoria University of Wellington

Innskráningar kubbur

FARIN Í FERĐALAG!

14. október 2007 klukkan 13:03
Ég kláraði skólann í gær!!!!

Lokaverkefnið var í The Film Archive of Wellington, open for public. Performanc-ið var mjög flott og þetta gekk allt bara mjög vel:) Ég flýg norður eftir 2 daga og svo er það Thailand 22.okt!



Get ekki beðið eftir að komast í sólina, chilla, sötra bjór og þurfa ekki að hugsa um neitt!


Viđ töpuđum WORLD CUP á móti Frökkum!!! :-(

07. október 2007 klukkan 03:16

All Blacks captain Richie McCaw has his head in his hands at the press conference after his side was beaten in the Rugby World Cup quarterfinals by France.


A tearful Kiwi rings home with the bad news.


Uppáhalds parturinn minn af Rugby leikjunum er HAKA-Ð í byrjun hvers leiks!

PARTY HJÁ EMMU - BLACK SHEEDS - GOOD LUCK

06. október 2007 klukkan 02:12
Ólöf átti afmæli í gær 5.október, af því tilefni ákváðum við að fara á tónleika með BLACK SHEEDS! (nýsjálenskri hljómsveit)



Gamanið byrjaði heima hjá Emmu og Sigurjóni og svo fórum við á snilldar tónleika! Það var uppselt þannig að húsið var pakkað af fólki, liggur við að svitinn af næsta manni hafi klínst við mann... Eftir tónleikana fórum við aftur heim til Emmu í svona 10 mín og svo í bæinn. Ég og Lísa hittum, Mike, James, Ollie og Leif úti á götu og við ákváðum að skella okkur á Good Luck! Við dönsuðum þar til það var búið að loka, þá "löbbuðum" heim. (búum fyrir ofan Good luck)

Heiðdís og Biggi eignuðust lítinn töffara í gær, til hamingju krakkar!

Ég er farin að hlakka svo mikið til að fara norður, Shay hringdi áðan og sagði að hann væri að surfa í sólinni:( ég var bara ohhh afhverju þarf ég að vera í skólanum!

Bara ein vika eftir og svo er þetta búið!!!

Stunt í Avatar, mynd sem kemur út 2009!

25. september 2007 klukkan 08:53
Það var verið að biðja mig um að vera stunt í Avatar (Hollywoodmynd sem verðuð filmuð í Ástralíu) Ég á að vera stunt fyrir Sigourney Weaver sem er aðal leikkonan í myndinni:) Það er búið að mæla mig í bak og fyrir og ég passa í öll málin hennar... Þessi vinna verður í Weta workshop , sem gerðu meðal annars King Kong og Narnia En ég fæ planið núna í vikunni og sé hvort ég geti þetta eða hvort ég verði farin til Tælands.

Joico Hair Show in New Zealand

25. september 2007 klukkan 03:07

HEIMKOMA!

24. september 2007 klukkan 22:18
4.oktober = Shay flýgur norður til fjölskyldunnar sinnar
16.oktober = ég flýg norður til fjölskyldunnar hans Shay í viku
22.oktober = fljúgum saman frá Auckland til Thailands
15.nóvember = ég flýg til Köben og hitti mömmu og Dagnýju
18.nóvember = ég kem heim til Íslands!!!!
19.nóvember = Shay flýgur frá Tælandi til London
2.desember = Shay flýgur frá London til Íslands!

Flight of the conchords

24. september 2007 klukkan 22:14
Þetta er svo fáránlega fyndinn þáttur um 2 gaura frá NZ! Er hann sýndur í sjónvarpinu heima???



Hérna er heimasíðan þeirra!





Á morgun er ég að fara að sýna á tískusýningu, þau ætla að lita mig og klippa fyrir sýninguna þannig að ég á eftir að líta út eitthvað svipað og þessi gella en samt með aðeins síðara! Ég á líklega eftir að líta út eins og bjáni þegar ég kem heim, who cares! þetta vex aftur!


Get ekki beðið eftir að hitta ykkur öll!

Signý

Mér finnst vera komin tími á ađ flytja fréttir héđan!

16. júní 2007 klukkan 02:06

Ég ætla að gera aðra heiðarlega tilraun til að byrja að blogga aftur!

Það er frekar margt búið að gerast á þessu ári!

Ég og Ólöf fórum á ROAD TRIP síðasta sumar, frá 30. nóvember til 3. febrúar! Allar myndirnar koma bráðum á netið!

Ég er búin að skipta um skóla... fór frá Massey University í Victoria Univesity of Wellington! Er á 3 ári í Digital Media Design, þetta nám gæti ekki verið skemmtilegra! Ég er að læra Graphic design, animation, film, photography, telematics, cinematics, Dynamic web design og allskonar skemmtilegt dótarí!


Við fórum í inverskt 21st í gær! Nasía, stelpa í bekknum hennar Lísu átti afmæli og allir þurftu að koma í indverskum fötum! Við Lísa klæddum okkur upp í sari og strákarnir leigðu sér búninga. Þetta var frekar fyndið þar sem flestar stelpurnar í sari voru annað hvort indverskar, asískar eða indian Fijian, við Lísa vorum klárlega hvítastar:) 21 árs afmælið er stæsta afmælið hérna, þá áttu að vera orðin nógu gömul/gamall til að sjá fyrir sjálfum þér og það er hefð að foreldarnir gefi barninu lykil (hálsmen eða glerstyttu) og það á að vera lykillinn að lífinu!




Ég var að klára önnina 8.júní, sem þyðir að ég á bara 1 og hálft ár eftir!!! (af 4 árum) Skólinn gekk mjög vel! Var hæst í bekknum á þessarri önn, er buin að fá 2 einkunnir A og A+ algjört nörd! Lísa kláraði 14.júní og við eigum jafn mikið eftir, útskrifumst saman í október 2008!

Við erum að koma heim til Íslands í lok oktober eða byrjun nóvember, ég get ekki beðið!!!! Þá verð ég búin að vera í burtu í 2 ár! Ég held að það verði mjög skrítið að koma heim, þegar ég heyri fréttir að heiman, finnst mér allir vera orðnir eitthvað svo fullorðnir... búin að kaupa íbúð, komin með börn, eru að fara að gifta sig og ég veit ekki hvað og hvað! Á meðan ég er að leigja með 5 manns í miðbæ Wellington og hef ekki séð lítið barn í nánast 1 og hálft ár! (ég er farin að halda að þessi þjóð sé ekkert að fjölga sér eða að ófrískar konur séu bannaðar í miðbænum... hehe

Ég er að fara með Shay norður 23.júní í viku! Gistum hjá fölskyldunni hans og ætlum að pikka Emmu og Sigurjón upp frá Auckland 28.juni, við fljúgum svo með þeim hingað 30.júní!

Jæja ég er farin að fá mér morgunmat!

SAKNA YKKAR ALLRA!!!

Auglýsing

Leit

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Ţennan mánuđ: ...
  • Frá upphafi: ...